Síðasti dans Amins með KR á morgun

Dansar með liðsfélögunum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Dansar með liðsfélögunum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Amin Cosic, leikmaður KR, mun að öllum líkindum spila sinn síðasta leik fyrir KR á morgun áður en hann heldur út til Viking Stavanger í Noregi.
KR mætir Þór á VÍS vellinum fyrir norðan á morgun. Flautað verður til leiks 17:00.
Verðmiðinn á Amin er sagður vera um 80 milljónir króna og yrði það raunin væri hann einn dýrasti leikmaður sem keyptur hefur verið frá Íslandi.
Amin hefur verið einn besti leikmaður Bestu deildarinnar í upphafi móts en hann hefur skorað fjögur mörk og lagt upp eitt í þrettán deildarleikjum.

Fyrr í dag birti Amin mynd af sjálfum sér í KR æfingafatnaði og skrifaði við myndina: 'Last dance' eða síðasti dansinn.