Tottenham hafnaði tilboði frá Newcastle

Mynd: Tottenham

Mynd: EPA

Mynd: Tottenham
Newcastle United er að reyna að kaupa miðjumanninn efnilega Archie Gray úr röðum Tottenham og lagði fram tilboð sem var hafnað í dag.
Gray er 20 ára gamall og borgaði Tottenham um 40 milljónir punda til að kaupa hann úr röðum Leeds fyrir tveimur árum.
Ekki er greint frá því hversu háa upphæð Newcastle bauð í miðjumanninn en Tottenham vill ekki selja Gray.
Tottenham er á sama tíma í viðræðum við Newcastle um ítalska miðjumanninn Sandro Tonali. Spurs er reiðubúið til að greiða 90 milljónir punda fyrir miðjumanninn eftirsótta.
Heimildarmenn Sky Sports hjá félagsliðunum viðurkenna viðræður en segja að ekkert opinbert tilboð hafi verið lagt fram. Heimildir Fabrizio Romano nefna hins vegar tilboð fyrir óuppgefna upphæð.

TENGT EFNI
Tottenham nær samkomulagi við Newcastle

Mynd: EPA