Fotbolti.net
01.07.26 - 22:05
Ívan Guðjón Baldursson

Tuchel: Mexíkó byrjar með forskot

Tuchel: Mexíkó byrjar með forskot
Canon

Mynd: EPA

England lagði Austur-Kongó að velli í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í dag og spilar við heimamenn í Mexíkó í 16-liða úrslitum.
Tuchel er smeykur fyrir leikinn þar sem Mexíkóar leika á heimavelli sínum sem er í 2,2km hæð yfir sjávarmáli. Landsliðið hefur spilað alla sína leiki á heimsmeistaramótinu þar nema einn, sem var leikinn í 1,67km hæð. Mexíkó hefur unnið alla leikina hingað til án þess að fá mark á sig.

„Mexíkó er að spila nánast alla sína leiki á sama velli og leikmennirnir eru búnir að aðlagast andrúmsloftinu í þessari hæð. Við höfum ekki nægan tíma til aðlögunar og það er mjög stór ókostur, þeir byrja með þetta forskot á okkur og ég veit ekki hvort þeir verði með einhver fleiri forskot. Til dæmis veit ég ekki hvort ferðalagið muni ganga vel fyrir sig, eða ef við munum ná einhverjum svefni fyrir leikinn ef það verða læti fyrir utan hótelið," sagði Tuchel eftir sigurinn gegn Kongó.

„Þetta er mjög spennandi viðureign. Það verður mikið af hindrunum á vegi okkar en við erum tilbúnir að gera hvað sem þarf til að sigra."

Tuchel: Alveg sama hvað fólk segir
TENGT EFNI

Tuchel: Alveg sama hvað fólk segir

Tuchel: Mexíkó byrjar með forskot
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.