Viðræður Newcastle og Spurs halda áfram - Buðu 90 milljónir punda

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Tottenham Hotspur hefur lagt fram nýtt og betrumbætt tilboð í ítalska landsliðsmanninn Sandro Tonali. Sagt er að það hafi hljóða upp á um 90 milljónir punda.
Tonali er leikmaður Newcastle og vill félagið fá 100 milljónir punda fyrir miðjumanninn. TalkSPORT segir að viðræður milli félaganna haldi áfram.

Tonali var keyptur til Newcastle frá AC Milan sumarið 2023 en spilaði ekkert í u.þ.b. eitt tímabil þar sem hann var dæmdur í bann fyrir að brjóta veðmálareglur.
Hann er 26 ára og er lykilmaður í liði Newcastle. Hann hefur einnig verið orðaður við bæði Manchester-félögin og Arsenal.
Tottenham er heldur betur að gera sig gildandi á markaðnum en félagið er einnig að reyna landa Mateus Fernandes, miðjumanni West Ham.