Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 01. ágúst 2021 16:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Chelsea vann Arsenal í fyrsta leik White
Mynd: Arsenal
Það var Lundúnarslagur í dag þegar Arsenal og Chelsea áttust við. Lundúnarliðin Arsenal, Chelsea og Tottenham eigast við í litlu æfingamóti þessa dagana.

Ágóði frá leikjunum skiptist milli góðgerðamála í þágu andlegrar heilsu.

Chelsea var marki yfir í hálfleik en Kai Havertz skoraði. Ben White byrjaði síðari hálfleikinn fyrir Arsenal en þetta var fyrsti leikurinn hans síðan hann kom frá Brighton. Á 55. mínútu bjargaði hann á línu eftir skot frá Ziyech.

Xhaka jafnaði metin fyrir Arsenal en Abraham tryggði Chelsea sigurinn. Margir héldu að Willock hafi jafnað metin undir lokin en boltinn fór ekki yfir línuna.

Chelsea mætir Tottenham á miðvikudaginn og Arsenal mætir síðan Tottenham á sunnudaginn. Þetta eru síðustu æfingaleikir liðanna.

Wolves vann Coventry 2-1 fyrr í dag. Fabio Silva og Ruben Neves með mörkin fyrir Wolves.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner