Fotbolti.net
01.08.26 - 20:20
Brynjar Ingi Erluson

Sex í banni eftir Þjóðhátíðarleikinn

Rúnar Kristinsson verður í banni gegn sínum gömlu félögum í KR

Rúnar Kristinsson verður í banni gegn sínum gömlu félögum í KR

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sex leikmenn verða í banni í næstu umferð Bestu deildarinnar eftir spjaldaflóðið í leik ÍBV og Fram á Hásteinsvelli í dag.
Besta deildin: Fram hafði betur í Þjóðhátíðarslagnum
TENGT EFNI

Besta deildin: Fram hafði betur í Þjóðhátíðarslagnum

Þrír leikmenn Fram fengu gult spjald í leiknum, þeir Israel Garcia, Ægir Jarl Jónasson og Sigurjón Rúnarsson.

Allir voru einu spjaldi frá leikbanni vegna uppsafnaðra áminninga og verða því í banni þegar Framarar mæta KR í næstu umferð Bestu deildarinnar.

Eyjamenn misstu einnig tvo mikilvæga leikmenn í bann. Bjarki Björn Gunnarsson og Felix Örn Friðriksson voru báðir á hættusvæðinu og fengu gult spjald. Þeir missa því af leiknum gegn Íslandsmeisturum Víkings 9. ágúst.

Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, verður heldur ekki á hliðarlínunni gegn sínum gömlu félögum í KR. Hann fékk rautt spjald fyrir að mótmæla dómgæslunni þegar lítið var eftir af leiknum. Vísir sagði frá því að Rúnar hafi grýtt brúsa í vegg og viðurkenndi hann að hafa farið yfir strikið.

Mikill hiti var í leikmönnum og þjálfurum en alls fóru ellefu spjöld á loft í Þjóðhátíðarleiknum.

Fram vann ÍBV, 2-1, og fór upp í annað sæti með 37 stig. Liðið er tveimur stigum á undan KR sem á leik til góða. ÍBV situr í áttunda sæti með 16 stig.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.