01.08.26 - 20:59
Brynjar Ingi Erluson
Sextán ára með mark og stoðsendingu í sigri Arsenal

Max Dowman skoraði og lagði upp

Mynd: EPA

Max Dowman skoraði og lagði upp

Mynd: EPA
Englandsmeistarar Arsenal unnu góðan 4-1 sigur á Girona í æfingaleik á Estadio Municipal de Montilivi-leikvanginum í Girona í kvöld.
Arsenal lék fyrsta æfingaleik sumarsins í dag og hinn 16 ára gamli Max Dowman var í aðalhlutverki.
Hann lagði upp fyrsta mark leiksins fyrir Kai Havertz á 16. mínútu. Gríski sóknarmaðurinn Christos Tzolis opnaði síðan markareikning sinn fyrir Arsenal, aðeins nokkrum dögum eftir að hann kom frá Club Brugge.
Dowman skoraði sjálfur þriðja markið á 53. mínútu áður en Gabriel Jesus rak smiðshöggið á stórsigurinn.
Dowman varð yngsti leikmaðurinn í sögu Arsenal á síðasta tímabili og sýndi oft skemmtilega takta á frábæru tímabili liðsins. Hann minnti enn og aftur á hversu mikið efni hann er og gæti fengið enn stærra hlutverk á komandi leiktíð.
Öflug byrjun á undirbúningstímabilinu hjá Arsenal sem mætir Real Betis eftir fjóra daga.

Max Dowman is going to be a big problem next season. pic.twitter.com/THwBtllo4q
— Lea (@Lea_EFC) August 1, 2026