01.08.26 - 23:00
Brynjar Ingi Erluson
Arftaki Jimenez fundinn

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Enska úrvalsdeildarfélagið Bournemouth er að ganga frá kaupum á spænska leikmanninum Juanlu frá Sevilla.

TENGT EFNI
Jimenez yfirgefur Bournemouth og verður liðsfélagi Alberts
Fabrizio Romano segir á X að Bournemouth hafi tekist að halda viðræðum sínum við Sevilla um Juanlu leyndum en þær séu nú komnar langt á veg.
Juanlu er 22 ára gamall hægri bakvörður sem getur einnig leyst stöðuna á vængnum.
Hann hefur staðið sig vel með Sevilla undanfarin ár en stefnir nú í að hann taki næsta skref á Englandi. Bournemouth hefur lagt fram samningstilboð sem Juanlu er sagður ætla að samþykkja.
Hann yrði annar leikmaðurinn sem Bournemouth fær til sín á nokkrum dögum á eftir Antonio Silva sem kom frá Benfica.
Juanlu er ætlað að fylla skarð Alex Jimenez sem fór á láni til Fiorentina í síðasta mánuði.