Fotbolti.net
01.08.26 - 13:02
Ívan Guðjón Baldursson

Arsenal nær samkomulagi við Newcastle - Inter nálgast Curtis Jones

Arsenal nær samkomulagi við Newcastle - Inter nálgast Curtis Jones
Canon

Mynd: EPA

Powerade
BBC hefur tekið saman slúðurpakka dagsins og er hann birtur hér í boði Powerade. Það er ýmislegt að frétta í slúðrinu í dag þar sem Bruno Guimaraes, Curtis Jones, Cristian Romero og Ethan Nwaneri eru meðal þeirra sem koma fyrir.

Arsenal er búið að ná samkomulagi við Newcastle um kaupverð fyrir miðjumanninn Bruno Guimaraes, 28 ára. Englandsmeistararnir borga 77 milljónir punda í heildina. (L'Equipe)

Inter er reiðubúið til að borga 30 milljónir punda fyrir Curtis Jones, 25, en Liverpool vill fá 35 milljónir til að selja miðjumanninn. (Daily Mail)

Inter tókst ekki að semja við Cristian Romero, 28 ára fyrirliða Tottenham, um persónuleg kjör. Leikmaðurinn gæti ákveðið að fara frekar til Spánar þar sem stórveldin Real Madrid, Atlético Madrid og Barcelona hafa öll verið nefnd til sögunnar sem mögulegir áfangastaðir. (Teamtalk)

AC Milan er í sambandi við Arsenal í tilraun til að fá Ethan Nwaneri, 19, á láni út tímabilið. (Corriere dello Sport)

Real Madrid ætlar ekki að bæta samningstilboð sitt til Vinícius Júnior, 26 ára. Félagið er reiðubúið til að selja Vini ef hann samþykkir ekki nýjan samning. (ESPN)

Newcastle United er að ganga frá kaupum á Lukas Hornicek, 24 ára markverði Braga og tékkneska landsliðsins. (Talksport)

Hull City er að berjast við Leeds United og West Ham um miðjumanninn Amadou Koné, 21, sem er samningsbundinn Neom SC í Sádi-Arabíu. (Teamtalk)

West Ham er að reyna að kaupa Morgan Whittaker, 25, úr röðum Middlesbrough. (Talksport)

Middlesbrough er að ganga frá kaupum á bandaríska vængbakverðinum Max Arfsten. Sá er 25 ára og kemur úr röðum Columbus Crew fyrir tæpar 6 milljónir punda. (Goal)

Wolves hafnaði kauptilboði frá Real Sociedad í tékkneska miðvörðinn Ladislav Krejci, 27 ára. (Fabrizio Romano)
Arsenal nær samkomulagi við Newcastle - Inter nálgast Curtis Jones
Canon

Mynd: EPA

Arsenal nær samkomulagi við Newcastle - Inter nálgast Curtis Jones
Canon

Mynd: EPA

Arsenal nær samkomulagi við Newcastle - Inter nálgast Curtis Jones
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.