Fotbolti.net
01.08.26 - 22:38
Brynjar Ingi Erluson

Arteta um Gyökeres: Hann verður áfram hjá okkur

Arteta um Gyökeres: Hann verður áfram hjá okkur
Canon

Mynd: EPA

Sænski framherjinn Viktor Gyökeres er ekki á förum frá Englandsmeisturum Arsenal í sumar en þetta staðfesti Mikel Arteta, stjóri liðsins, í kvöld.
Í sumar hafa erlendir fjölmiðlar sagt Gyökeres mögulega á förum frá Arsenal, aðeins ári eftir að hann gekk til liðs við félagið.

Hann var einn eftirsóttasti framherji heims þegar Arsenal fékk hann frá Sporting í fyrra eftir mikla markasúpu í Portúgal. Svíinn var þó nokkuð lengi að finna taktinn á Englandi.

Gyökeres lauk tímabilinu hins vegar af krafti og skoraði alls 21 mark í öllum keppnum. Hann var þar með markahæsti leikmaður Englandsmeistaranna.

Það virtist samt oft vanta herslumuninn og héldu spænskir fjölmiðlar því fram að Arsenal væri reiðubúið að láta hann fara til Atlético Madríd í skiptum fyrir Julian Alvarez.

Arteta var spurður út í framtíð Gyokeres eftir 4-1 sigur Arsenal á Girona í æfingaleik í kvöld. Hann staðfesti að framherjinn yrði áfram hjá félaginu.

„Já, hann verður áfram,“ sagði Arteta.

Hann var í kjölfarið spurður um Alvarez en neitaði að tjá sig um leikmann sem væri ekki á mála hjá Arsenal.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.