Fotbolti.net
01.08.26 - 13:17
Ívan Guðjón Baldursson

Byrjunarlið ÍBV og Fram: Fimm breytingar frá síðustu umferð

Byrjunarlið ÍBV og Fram: Fimm breytingar frá síðustu umferð
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍBV tekur á móti Fram í Þjóðhátíðarslagnum í dag og hafa byrjunarliðin verið kynnt til leiks.
Lestu um leikinn: ÍBV 0 - 0 Fram
Heimamenn í Vestmannaeyjum gera þrjár breytingar frá naumu tapi gegn Breiðabliki í síðustu umferð.

Milan Tomic, Hermann Þór Ragnarsson og Halldór Jón Sigurður Þórðarson koma inn í byrjunarliðið fyrir Sesar Örn Harðarson, Viggó Valgeirsson og Róbert Elís Hlynsson sem setjast á bekkinn.

Framarar gera tvær breytingar þar sem lykilmaðurinn Kennie Chopart er í leikbanni vegna uppsafnaðra gulra spjalda og sest Róbert Hauksson á varamannabekkinn. Í þeirra stað koma Kyle Mc Lagan og Simon Tibbling inn í byrjunarliðið.

Þetta er spennandi slagur í dag þar sem ÍBV getur komið sér í efri hluta Bestu deildarinnar með sigri á meðan Fram þarf sigur til að endurheimta 2. sætið af KR.

Byrjunarlið ÍBV:
33. Ari i Haraldstovu Petersen (m)
2. Sigurður Arnar Magnússon
4. Mattias Edeland
6. Milan Tomic
8. Bjarki Björn Gunnarsson
23. Arnór Ingi Kristinsson
24. Hermann Þór Ragnarsson
25. Alex Freyr Hilmarsson (f)
26. Felix Örn Friðriksson
30. Vicente Valor
80. Halldór Jón Sigurður Þórðarson

Byrjunarlið Fram:
22. Viktor Freyr Sigurðsson (m)
3. Þorri Stefán Þorbjörnsson
5. Kyle McLagan
8. Haraldur Einar Ásgrímsson
10. Fred Saraiva (f)
12. Simon Tibbling
18. Ægir Jarl Jónasson
23. Már Ægisson
25. Freyr Sigurðsson
26. Sigurjón Rúnarsson
29. Vuk Oskar Dimitrijevic
Byrjunarlið ÍBV og Fram: Fimm breytingar frá síðustu umferð
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.