Fotbolti.net
01.08.26 - 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalski boltinn

Douglas Luiz fær annað tækifæri

Douglas Luiz fær annað tækifæri
Canon

Mynd: EPA

Brasilíski miðjumaðurinn Douglas Luiz fær tækifæri til að sanna sig hjá Juventus í vetur eftir að hafa leikið með Nottingham Forest og Aston Villa á láni á síðustu leiktíð.
Luiz er 28 ára gamall og á ennþá þrjú ár eftir af samningi sínum við Juventus, sem borgaði jafnvirði 50 milljóna evra til að kaupa hann úr röðum Aston Villa fyrir tveimur árum síðan.

Luiz stóðst ekki væntingar á fyrsta tímabili hjá Juve. Hvorki Thiago Motta né Igor Tudor hugðist nota hann svo miðjumaðurinn fór aftur í enska boltann á láni, en náði ekki að festa sig í sessi í byrjunarliðinu hjá Forest. Hann fékk talsvert meiri spiltíma hjá Aston Villa en fékk ekki félagaskipti aftur í ensku úrvalsdeildina. Hann snéri aftur til Juventus og virðist ekki vera á förum í sumar.

Luiz var í byrjunarliðinu í 2-0 sigri í æfingaleik gegn Nice í gær og skoraði fyrra mark leiksins. Hann tjáði sig um framtíðina að leikslokum.

„Ég vil vera hjá Juventus í sumar. Félagið ætlar að gefa mér annað tækifæri, sem er það sem ég vildi," sagði Luiz.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.