01.08.26 - 22:24
Brynjar Ingi Erluson
Jaissle kynntur á morgun

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Þýski þjálfarinn Matthias Jaissle verður kynntur sem stjóri Newcastle United á morgun.
Eddie Howe sagði starfi sínu lausu eftir frábæran árangur á þeim fimm árum sem hann stýrði Newcastle.
Howe var sagður ósáttur við ákvörðun stjórnarinnar um að selja nokkrar af stærstu stjörnum liðsins. Þá sagðist hann vera andlega og líkamlega úrvinda eftir krefjandi ár hjá félaginu.
Newcastle hafði hraðar hendur og náði samkomulagi við Al Ahli um Jaissle. Enska félagið greiðir um átta milljónir punda til að leysa hinn efnilega Þjóðverja undan samningi.
Jaissle mun skrifa undir fjögurra ára samning við Newcastle á morgun, að sögn Fabrizio Romano.
Þjóðverjinn hóf þjálfaraferil sinn hjá Liefering áður en hann tók við RB Salzburg síðar sama ár. Sem leikmaður lék hann yfir 60 leiki fyrir aðallið Hoffenheim á árunum 2007 til 2014 og kom einu sinni við sögu með U21-árs landsliði Þýskalands.

Announcement tomorrow. ???? #NUFC https://t.co/cUQNwDIac5
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) August 1, 2026