01.08.26 - 14:56
Ívan Guðjón Baldursson
Mbeumo afgreiddi Atlético - Aston Villa skoraði þrjú

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Nokkur ensk úrvalsdeildarlið voru að ljúka æfingaleikjum sínum rétt í þessu þar sem Manchester United hafði betur gegn Atlético Madrid.
Bæði lið tefldu fram nokkuð sterkum byrjunarliðum og lentu Rauðu djöflarnir undir í Stokkhólmi svo staðan var 0-1 í leikhlé. Arnau Ortíz skoraði á fimmtu mínútu en Bryan Mbeumo svaraði með tvennu í síðari hálfleik.
Mbeumo jafnaði metin úr vítaspyrnu á 53. mínútu og setti svo sigurmarkið á 74. mínútu, svo lokatölur urðu 2-1. Til gamans má geta að fimmtán ára gamall JJ Gabriel þreytti frumraun sína með Man Utd í þessum leik.
Emiliano Buendía kom Aston Villa þá yfir gegn stjörnuliði indónesísku deildarinnar og tvöfaldaði Ross Barkley forystuna skömmu fyrir leikhlé. Táningurinn bráðefnilegi Brian Madjo innsiglaði svo sigurinn í síðari hálfleik.
Max Kilman skoraði þá eina mark West Ham í jafntefli gegn Magdeburg á meðan Leo Scienza og Lewis Dobbin leiddu endurkomusigur Southampton gegn Preussen Münster.
Man Utd 2 - 1 Atletico Madrid
0-1 Arnau Ortiz ('5)
1-1 Bryan Mbeumo ('53, víti)
2-1 Bryan Mbeumo ('74)
Liga 1 All-Stars 1 - 3 Aston Villa
0-1 Emiliano Buendia ('3)
0-2 Ross Barkley ('45)
0-3 Brian Madjo ('58)
1-3 ('83)
Magdeburg 1 - 1 West Ham
Preussen Munster 1 - 2 Southampton
Hansa Rostock 1 - 3 Gladbach