Fotbolti.net
01.08.26 - 22:07
Brynjar Ingi Erluson

Öruggur sigur hjá Íslendingaliðinu - Jafnt hjá Glódísi

Nik Chamberlain stýrði Kristianstad til sigurs í fyrsta leik eftir sumarfrí

Nik Chamberlain stýrði Kristianstad til sigurs í fyrsta leik eftir sumarfrí

Canon

Mynd: Kristianstad

Kvennaboltinn
Sænska liðið Kristianstad vann þægilegan 3-0 sigur á AIK í úrvalsdeildinni í dag þar sem þrír Íslendingar komu við sögu.
Nik Chamberlain er þjálfari Kristianstad eftir að hafa áður gert frábæra hluti með Þrótti og Breiðabliki.

Hann stýrði liðinu til sigurs í fyrsta leiknum eftir sumarfrí. Elísa Lana Sigurjónsdóttir og Alexandra Jóhannsdóttir voru báðar í byrjunarliðinu en Linda Líf Boama kom inn af bekknum.

Kristianstad er í fimmta sæti deildarinnar með 18 stig eftir tólf umferðir.

Glódís Perla Viggósdóttir var í vörn Bayern München sem gerði 2-2 jafntefli við erkifjendur sína í Nürnberg. Síðasti æfingaleikur Bayern verður gegn Paris FC eftir átta daga áður en Bæjarar mæta Wolfsburg í þýska Ofurbikarnum 15. ágúst.

Cecilía Rán Rúnarsdóttir stóð í marki Inter sem vann Como, 4-1. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir kom inn af bekknum á 63. mínútu.

Inter á tvo æfingaleiki eftir, gegn Union Berlín og Newcastle United, áður en Seríu A-bikarinn hefst 21. ágúst.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.