Fotbolti.net
01.08.26 - 07:30
Ívan Guðjón Baldursson

Roger Schmidt tekur við af Klopp

Roger Schmidt tekur við af Klopp
Canon

Mynd: EPA

Roger Schmidt verður ráðinn til að taka við af Jürgen Klopp sem yfirmaður fótboltamála hjá Red Bull samsteypunni risastóru.
Klopp fór frá Liverpool til að taka við starfinu og gegndi því í tvö ár áður en hann tók við þýska landsliðinu á dögunum.

Red Bull hóf þá leit að verðugum arftaka og lenti á Roger Schmidt, sem þjálfaði síðast Benfica frá 2022 til 2024 og var svo ráðinn sem yfirmaður fótboltamála hjá efstu deild í Japan ári síðar.

Hann starfaði þar í eitt ár áður en Red Bull bankaði á dyrnar.

Florian Scholz tekur við starfi sem auglýsingastjóri Red Bull eftir að hafa sinnt hinum ýmsu yfirmannsstörfum hjá RB Leipzig í um áratug.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.