01.08.26 - 17:03
Ívan Guðjón Baldursson
Roma steinlá í Cardiff - Dramatískt sigurmark Everton

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: Venezia FC

Mynd: EPA
Það er mikið um æfingaleiki víða um heim í dag og var nokkrum áhugaverðum leikjum að ljúka rétt í þessu þar sem AS Roma steinlá gegn Cardiff City í Wales.
Cian Ashford og Yusef Salech afgreiddu Rómverja. Paulo Dybala klúðraði vítaspyrnu í fyrri hálfleik og skoraði eina mark gestanna í síðari hálfleik, eftir undirbúning frá Matías Soulé.
Cardiff vann óvæntan 4-1 sigur á Rómverjum, sem munu leika í Meistaradeild Evrópu í haust.
Merlin Röhl náði þá forystunni, eftir einstaklega skemmtilegan undirbúning frá Thierno Barry, undir lok fyrri hálfleiks fyrir Everton gegn Hamburger SV en Þjóðverjarnir jöfnuðu metin í upphafi síðari hálfleiks.
Það stefndi allt í jafntefli þar til í uppbótartíma þegar leikmaður HSV lenti í því að setja boltann í eigið net, svo lokatölur urðu 1-2 fyrir Everton.
Championship lið Millwall og Swansea fóru einnig með sigra af hólmi líkt og Cardiff City, nema aðeins með einu marki gegn engu. Millwall lagði belgíska félagið Antwerp að velli á meðan Svanirnir sigruðu Leganés.
Middlesbrough gerði sex marka jafntefli við Espanyol og tapaði Norwich fyrir Osasuna þegar ensku félögin mættu andstæðingum frá Spáni.
Sheraldo Becker skoraði tvö fyrir Mainz í skemmtilegu jafntefli gegn Udinese og þá gerði Stuttgart jafntefli við Paris FC á meðan Eintracht Frankfurt vann sinn leik gegn þýsku neðrideildaliði.
Að lokum voru Hákon Arnar Haraldsson og Þórir Jóhann Helgason í byrjunarliðum í miklum markaleikjum hjá Lille og Venezia.
Hákon lék fyrstu 70 mínúturnar en komst ekki á blað er Lille hafði betur gegn OH Leuven. Staðan var 3-4 fyrir Lille þegar Hákoni var skipt af velli og urðu lokatölur 3-6, þar sem Ethan Mbappé og Olivier Giroud voru meðal markaskorara.
Þórir lék í fjörugu 4-3 tapi hjá Feneyingum, sem eru nýliðar í Serie A, gegn St. Etienne frá Frakklandi.
Cardiff 4 - 1 Roma
1-0 Cian Ashford ('3)
2-0 Yusef Salech ('30)
2-0 Paulo Dybala, misnotað víti ('35)
3-0 Cian Ashford ('39)
3-1 Paulo Dybala ('58)
4-1 Ollie Tanner ('63)
Hamburger SV 1 - 2 Everton
0-1 Merlin Rohl ('40)
1-1 ('49)
1-2 Jordan Torunarigha, sjálfsmark ('94)
Swansea 1 - 0 Leganes
Millwall 1 - 0 Antwerp
Middlesbrough 3 - 3 Espanyol
Norwich 1 - 2 Osasuna
Udinese 3 - 3 Mainz
Stuttgart 2 - 2 Paris
Mannheim 0 - 1 Eintracht Frankfurt
Leuven 3 - 6 Lille
St. Etienne 4 - 3 Venezia