01.08.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Skrifar undir hjá KR og flýgur út

Mynd: KR

Mynd: KR

Ásta Kristinsdóttir er búin að skrifa undir nýjan samning við KR sem gildir út næsta keppnistímabil. Hún hefur jafnframt leikið sinn síðasta leik á núverandi keppnistímabili þar sem hún flýgur út til Bandaríkjanna í háskólanám eftir verslunarmannahelgi.
Ásta er fædd 2002 og hefur spilað rúmlega 50 keppnisleiki fyrir KR frá því að hún lék sinn fyrsta leik fyrir meistaraflokk aðeins 15 ára gömul.
Ásta hefur einnig leikið með ÍR og Gróttu hingað til á ferlinum.
Hún hefur komið við sögu í nokkrum leikjum í sumar en KR situr í öðru sæti Lengjudeildarinnar sem stendur, sex stigum á eftir toppliði Gróttu og með leik til góða.