Fotbolti.net
01.08.26 - 15:47
Ívan Guðjón Baldursson

Stundum vill Richarlison vera áfram og stundum vill hann fara

Stundum vill Richarlison vera áfram og stundum vill hann fara
Canon

Mynd: EPA

Roberto De Zerbi tjáði sig eftir sigur Tottenham gegn Chelsea í æfingaleik í Sydney í dag og var meðal annars spurður út í brasilíska sóknarmanninn Richarlison.
Richarlison kom inn af bekknum og skoraði sigurmarkið fyrir tíu leikmenn Tottenham sem höfðu spilað seinni hálfleikinn manni færri. Hann skoraði einnig í æfingaleik í síðustu viku og gæti reynst afar mikilvægur á komandi tímabili.

„Ég veit ekki hvað framtíðin ber í skauti sér. Mér líkar mjög vel við hann sem leikmann og sem einstakling. Hann er með frábært hugarfar og leggur sig allan fram á hverri einustu æfingu, en þegar allt kemur til alls þá verðum við að virða hans óskir," sagði De Zerbi.

„Richarlison er frábær sóknarmaður og það er ekki auðvelt að finna jafn gæðamikinn leikmann og hann. Hann skoraði tólf mörk á síðustu leiktíð og það er ekki útaf heppni, þetta er leikmaður sem kann að skora.

„Hann er mikilvægur leikmaður fyrir okkur en ég veit ekki hvað hann vill gera. Stundum segist hann vilja vera áfram hjá félaginu og stundum segist hann vilja fara."


Richarlison er 29 ára gamall og er aðeins með eitt ár eftir af samningi við Tottenham, sem keypti hann úr röðum Everton fyrir fjórum árum síðan. Þá kostaði Richarlison 60 milljónir punda með árangurstengdum aukagreiðslum.

„Við eigum eftir að ræða málin betur en það er ekkert vandamál hérna. Richarlison er frábær náungi og við elskum hann. Liðsfélagarnir elska hann, félagið, starfsfólkið og allir aðrir sem eru í kringum æfingasvæðið. Þetta er leikmaður sem leggur mikið á sig á hverjum degi og skilar góðum frammistöðum á vellinum."
Stundum vill Richarlison vera áfram og stundum vill hann fara
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.