01.08.26 - 21:27
Brynjar Ingi Erluson
Tap hjá Tómasi í fyrsta deildarleik tímabilsins

Tómas Bent og Hearts töpuðu fyrsta deildarleiknum

Mynd: Hearts

Tómas Bent Magnússon og félagar hans í Hearts töpuðu óvænt fyrir Aberdeen, 2-1, í fyrstu umferð skosku úrvalsdeildarinnar í kvöld.
Eyjamaðurinn byrjaði á bekknum hjá Hearts en kom inn á þegar um tíu mínútur voru til leiksloka.
Kevin Nisbet, sem hefur verið sjóðheitur með Aberdeen á undirbúningstímabilinu, lagði upp fyrra mark liðsins og skoraði síðan sigurmarkið úr vítaspyrnu seint í uppbótartíma.
Kjartan Már Kjartansson er á mála hjá Aberdeen en var ekki í leikmannahópnum.
Þetta voru önnur vonbrigði vikunnar hjá Hearts sem féll einnig úr leik í forkeppni Meistaradeildarinnar. Evrópuævintýrið heldur þó áfram en næst bíður Benfica í þriðju umferð Evrópudeildarinnar.
Logi Tómasson og félagar í Samsunspor unnu Westerlo, 2-1, í æfingaleik. Logi var í byrjunarliði tyrkneska félagsins.
Mikael Egill Ellertsson byrjaði þá hjá Genoa sem marði 1-0 sigur á enska C-deildarliðinu Leicester City.