01.08.26 - 10:00
Ívan Guðjón Baldursson
Þrír ÍR-ingar fljúga til Bandaríkjanna

Mynd: ÍR

Mynd: ÍR

ÍR er að missa þrjá leikmenn úr herbúðum sínum um helgina þar sem þeir halda út í nám til Bandaríkjanna.
Allir þrír hafa þeir sinnt mikilvægum hlutverkum í sumar. Ísak Atli Atlason og Hákon Dagur Matthíasson allt tímabilið á meðan Arnór Sölvi Harðarson hefur komið sterkur inn í síðustu leikjum.
Þeir eru að yfirgefa Breiðholtið á mikilvægum tímapunkti tímabilsins, en ÍR er með 16 stig eftir 16 umferðir - fimm stigum fyrir ofan fallsvæðið þegar sex umferðir eru eftir.
„Við þökkum þessum þremur strákum innilega fyrir þeirra framlag fyrir ÍR bæði innan sem utan vallar á þessu ári og óskum þeim alls hins besta vestan hafs!" segir í tilkynningu frá ÍR.