01.08.26 - 20:42
Brynjar Ingi Erluson
Times: Samkomulag um Guimaraes í höfn - Fer í læknisskoðun á mánudag

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Útlit er fyrir að brasilíski miðjumaðurinn Bruno Guimaraes sé að fá sínu framgengt, en Times segir Englandsmeistara Arsenal hafa náð samkomulagi við Newcastle United um kaupverð.
Guimaraes, fyrirliði Newcastle, hafði tilkynnt félaginu að hann vildi taka næsta skref á ferlinum.
Arsenal sýndi honum mikinn áhuga og lagði fram tilboð í síðasta mánuði sem Newcastle hafnaði.
Félögin settust aftur að samningaborðinu og fullyrðir Times að samkomulag sé nú í höfn. Arsenal greiðir 80 milljónir punda fyrir Guimaraes sem mun gangast undir læknisskoðun á mánudag.
Brasilíumaðurinn er mikill liðsstyrkur fyrir Arsenal sem ætlar að verja Englandsmeistaratitilinn á komandi leiktíð.
Guimaraes hefur leikið á Englandi frá árinu 2022 þegar hann gekk til liðs við Newcastle frá Lyon. Á síðasta ári leiddi hann liðið til fyrsta stóra titils félagsins í 70 ár þegar Newcastle vann Liverpool í úrslitaleik enska deildabikarsins.