01.08.26 - 11:57
Ívan Guðjón Baldursson
Tíu leikmenn Tottenham lögðu Chelsea - Fulham vann

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Fyrstu æfingaleikjum dagsins er lokið og var einn stórleikur á dagskrá þegar Chelsea mætti Tottenham í Lundúnaslag sem fór fram í Sydney, Ástralíu.
Brasilíski kantmaðurinn Estevao náði forystunni fyrir Chelsea í fyrri hálfleik en Sandro Tonali, sem Tottenham keypti á dögunum fyrir 100 milljónir punda, jafnaði metin skömmu fyrir leikhlé.
Kevin Danso fékk svo að líta beint rautt spjald í upphafi síðari hálfleiks og sóttu leikmenn Chelsea einum leikmanni fleiri, án þess að takast að skora. Brasilíumaðurinn Richarlison kom inn af bekknum í liði Tottenham og náði að gera sigurmark í uppbótartíma, svo tíu leikmönnum liðsins tókst að leggja ellefu Chelsea menn að velli.
Xabi Alonso er við stjórnvölinn hjá Chelsea á meðan Roberto De Zerbi þjálfar Tottenham.
Fulham var þá undir í hálfleik gegn SC Farense frá Portúgal en Alex Iwobi jafnaði metin í síðari hálfleik áður en Rodrigo Muniz gerði sigurmark undir lokin. Álvaro Arbeloa stýrir Fulham.
Bologna lagði þá Cambuur að velli á meðan Lazio skoraði sex mörk gegn Avellino og Bayer Leverkusen sigraði Essen.
Chelsea 1 - 2 Tottenham
1-0 Estevao ('21)
1-1 Sandro Tonali ('45)
1-2 Richarlison ('92)
Rautt spjald: Kevin Danso, Tottenham ('49)
SC Farense 1 - 2 Fulham
1-0 ('45)
1-1 Alex Iwobi ('52)
1-2 Rodrigo Muniz ('90, víti)
Bologna 3 - 1 Cambuur
Lazio 6 - 3 Avellino
Leverkusen 3 - 0 Essen