Fotbolti.net
01.08.26 - 22:30
Brynjar Ingi Erluson

Uppselt á fyrsta heimaleik Zidane

Uppselt á fyrsta heimaleik Zidane
Canon

Mynd: EPA

Það verður fullt hús þegar Zinedine Zidane stýrir franska landsliðinu í fyrsta sinn á heimavelli. Þetta kemur fram í RMC Sport.
Zidane tók á dögunum við franska landsliðinu af Didier Deschamps sem lét af störfum þegar samningur hans rann út í sumar.

Það hafði lengi legið í loftinu að Zidane tæki við starfinu en hann skrifaði undir fjögurra ára samning við franska knattspyrnusambandið.

Mikil eftirvænting ríkir í Frakklandi og seldist upp á fyrsta heimaleik liðsins undir stjórn Zidane á aðeins nokkrum klukkustundum.

Samkvæmt RMC Sport seldust allir 80 þúsund miðarnir á leik Frakklands og Ítalíu í Þjóðadeildinni 2. október. Leikurinn fer fram á Stade de France í París.

Frakkar hefja þó keppnina á tveimur útileikjum gegn Tyrklandi og Belgíu áður en Ítalir koma í heimsókn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.