Brynjar: Biðst afsökunar á frammistöðunni
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það er best að lýsa viðbrögðum Brynjars Björns HK-þjálfara sem hálfgerðu sjokki hjá honum eftir 1-3 tap fyrir Víkingi í Kórnum í dag.
"Mér fannst við ömurlegir, ég hef ekki séð okkur svona lélega. Ég held að þetta sé lélegasti leikur sem við höfum spilað í þessari höll. Mér fannst Víkingarnir ekki skapa mikið, þetta var lélegur fótboltaleikur og ég vill fyrir hönd míns liðs biðjast afsökunar á þessari frammistöðu."

HK hafa verið þekktir fyrir grimmd og baráttu í sumar en það var ekki sýnilegt í dag, var skarð Ásgeirs Barkar svo stórt eða fylla eða hver gæti skýringin verið á því?
"Þetta var almennur doði, ég set spurningamerki við sjálfan mig og leikmenninna, hvað þeir voru að gera í gær og fyrradag, hvernig þeir voru að undirbúa sig fyrir leikinn og hvað þeir sáu eiginlega fyrir sér hérna í dag."
Úrslit umferðarinnar þýddu það að HK hefði bara farið á kaf í baráttu fyrir Evrópusæti með sigri, er Brynjar extra svekktur yfir því?
"Mér er andskotans sama um úrslit annara liða, við verðum bara að sjá um okkur og við getum ekki komið til leiks eins og við gerðum í dag".
Nánar er rætt við Brynjar í viðtalinu sem fylgir.