23:00Takk fyrir samfylgdinaVið eigum þá eftir að fá (Staðfest) á Enzo Fernandez og Marcel Sabitzer.
Og jú, Jonjo Shelvey til Nottingham Forest.
Annars er þetta allt svo gott sem komið. Ég ætla að slútta þessari textalýsingu hér, takk fyrir samfylgdina. Við höldum áfram að segja fréttir á síðunni, endilega fylgist með.

22:42Pedro Porro í Tottenham (Staðfest)Loksins!
22:34Það er allt klárt með Enzo. Hann verður leikmaður Chelsea í kvöld.
22:23Magnað dæmiÞað sem er ótrúlegt í þessu er að Fernandez var keyptur til Benfica frá River Plate síðasta sumar fyrir 10 milljónir evra.
Núna er hann að fara til Chelsea fyrir 120 milljónir evra um sjö mánuðum síðar.
Ótrúlegt!

22:22Arsenal lánar Sambi Lokongatil Crystal Palace (Staðfest)
22:21Hector Bellerin til Sporting (Staðfest)Þá er það líka alveg ljóst að Pedro Porro fer í Tottenham.
22:21Langur samningurEins og búist var við þá mun Enzo Fernandez skrifa undir langan samning við Chelsea.
Átta og hálft ár!

22:13Navas í markið hjá Nottingham Forest
22:09Chelsea fer raðgreiðsluleiðinaSamkvæmt Matt Law hjá
Telegraph þá mun Chelsea borga 120 milljón evra riftunarverð Fernandez í þremur greiðslum yfir tvö ár.

22:07Hvernig mun Chelsea standast reglur?Viðræður um Enzo Fernandez hafa staðið yfir í tólf tíma stanslaust. Spurning hvað varð til þess að Benfica ákvað loksins að samþykkja tilboð Chelsea. Sama hvað það er, þá hlýtur það að vera erfitt fyrir Chelsea að standast fjármálareglur eftir að þeir ná honum inn.
Chelsea er búið að kaupa tvo af sex dýrustu leikmönnum í sögu enska boltans í þessum glugga. Mykhaylo Mudryk kostaði 100 milljónir evra og Fernandez kostar 120 milljónir evra.
22:05Todd Boehly, þessi maður.

22:01Maður þarf eiginlega að ná sér niður eftir þessi tíðindi. Þvílíkt og annað eins!
22:00Stórt!Þetta er að gerast! Það tók sinn tíma, en samkomulag er í höfn. Enzo Fernandez er á leið til Chelsea ef félögin tvö ná að skila öllum gögnum á réttum tíma.
Verður dýrasti leikmaður í sögu enska boltans.

22:00Klukkutími eftirÞað er klukkutími eftir af félagaskiptaglugganum fyrir ensk félög. Minni á það að félög geta enn klárað skipti eftir þann tíma ef þau klára að skrifa undir ákveðin skjöl áður en frestur til þess rennur út.
21:55Matt Doherty til Atletico (Staðfest)Get ekki sagt að ég hafi búist við þessu í byrjun dags.
21:50Samkomulag í höfnNei, ekki um Enzo.
En Chelsea er búið að samþykkja að leyfa kantmanninum Hakim Ziyech að fara til Paris Saint-Germain á láni.

21:48Traore mætturHamed Traore er mættur til Bournemouth á láni frá Sassuolo. Kemur á láni og svo þarf félagið að kaupa hann næsta sumar fyrir 30 milljónir evra.
21:46Nei, takk!Everton reynir og reynir, en það gengur ekkert upp. Félagið reyndi að fá franska sóknarmanninn Olivier Giroud á láni frá AC Milan en leikmaðurinn hafði ekki nokkurn skapaðan áhuga á því að fara á Goodison Park.

21:41Felipe til Nottingham Forest (Staðfest)Brasilískur varnarmaður sem kemur frá Atletico Madrid.
21:35Ég skil það mjög vel ef stuðningsmenn Everton eru reiðir með það hvernig dagurinn hefur farið... Og hvernig tímabilið hefur farið.
21:32Tilboði Everton hafnaðEverton gerði mjög seinbúið tilboð í Ismaila Sarr, kantmann Watford, en því var hafnað um leið. Everton ætlaði að borga 2 milljónir punda til þess að fá hann á láni út leiktíðina.
Var það innifalið í tilboðinu að Everton myndi þá borga 30 milljónir punda til þess að kaupa hann ef félagið myndi halda sér uppi.

21:31Stoke hugsar til TuanzebeStoke er að selja miðvörðinn Harry Souttar til Leicester. Stoke er að reyna að fá Axel Tuanzebe frá Manchester United til að fylla í hans skarð.

21:30Verður tæptSagt er að viðræðurnar á milli Benfica og Chelsea um Enzo Fernandez séu á góðum stað, en þetta verður tæpt!

21:14Jökull á ferð og flugiÍslenski unglingalandsliðsmarkvörðurinn Jökull Andrésson var að skipta um félag á gluggadegi. Hann er farinn frá Reading til Stevenage sem leikur í ensku D-deildinni.

21:08Elanga fer ekki neittKantmaðurinn Anthony Elanga verður áfram hjá Manchester United. Hann var sterklega orðaður við Everton og var þá talað um lánssamning.

21:04(Staðfest)Crystal Palace var að kaupa Naouirou Ahamada, miðjumann frá Stuttgart í Þýskalandi, fyrir tæpar 10 milljónir punda.
21:03Myndband frá HollywoodWrexham var að semja við Eoghan O’Connell. Í tilefni af því buðu Hollywood-eigendur þeirra upp á skemmtilegt myndband.
20:58Jorginho talar vel um ArtetaJorginho kveðst virkilega ánægður með það að vera kominn í Arsenal. Hann segist vita til þess að Mikel Arteta, stjóri Arsenal, hafi reynt að fá sig nokkrum sinnum, en það hafi ekki gengið upp - ekki fyrr en núna. Hann segir að Arteta spili stóran þátt í ákvörðun sinni að koma yfir til Arsenal.
Mikel Arteta 20:50Vestergaard útskýrir af hverju hann fer ekkiDanski miðvörðurinn Jannik Vestergaard vildi fara frá Leicester í þessum glugga en hann er ekki að fara neitt í dag. Hann segir að ástæðan sé sú að konan hans sé að fara eignast annað barn þeirra hjóna og núna er hún komin langt á leið. Konan hans getur ekki ferðast núna og því fer hann ekki fet.

20:50Januzaj til Tyrklands?Adnan Januzaj, fyrrum kantmaður Manchester United, er í viðræðum við Istanbul Basaksehir í Tyrklandi.

20:35Fá líka TraoreBournemouth er líka búið að ganga frá kaupunum á Hamed Traore frá Sassuolo fyrir 30 milljónir evra.

20:29Skemmtilegt myndband hjá BournemouthSamskiptadeildin hjá Bournemouth var að gefa út þetta flotta myndband í kjölfarið á kaupum félagsins á Ilya Zabarkyi.
20:27Sabitzer mættur í læknisskoðunMarcel Sabitzer er núna á æfingasvæði Manchester United þar sem hann er að gangast undir læknisskoðun fyrir félagaskipti sín til United.

20:24Ilya Zabarkyi til Bournemouth (Staðfest)Úkraínski miðvörðurinn Ilya Zabarkyi er genginn til liðs við Bournemouth frá Dynamo Kiev.
20:22Enzo ekki í hópBenfica á leik í kvöld gegn Arouca. Enzo Fernandez er ekki í hóp hjá Benfica þar sem Chelsea er að vinna í því að kaupa hann.
20:18Þetta er eftir:Hér fyrir neðan er ýmislegt af því sem er verið að vinna í og á eftir að staðfesta.
Enzo Fernandez til Chelsea
Marcel Sabitzer til Man Utd
Pedro Porro til Tottenham
Matt Doherty til Atletico Madrid
Cedric Soares til Fulham
Hakim Ziyech til PSG
Harry Souttar til Leicester
Felipe til Nottingham Forest
Jonjo Shelvey til Nottingham Forest
Keylor Navas til Nottingham Forest
Kamaldeen Sulemana til Southampton
Paul Onuachu til Southampton
Albert Sami Lokonga til Crystal Palace
20:15Porro búinn að skrifa undir samninginnPedro Porro er búinn að skrifa undir samning sinn við Tottenham og er því orðinn leikmaður félagsins.

20:12Gefum Mikel Arteta orðið:"Jorginho er mjög gáfaður miðjumaður, hann er með mikla leiðtogahæfileika og gríðarlega reynslu í ensku úrvalsdeildinni og líka með landsliði sínu."
20:06Númerið á bakinuJorginho verður númer 20 hjá Arsenal.
20:03Jorginho til Arsenal (Staðfest)Arsenal hefur staðfest félagaskipti ítalska miðjumannsins Jorginho til félagsins frá Chelsea. Hann skrifar undir samning til 2024.
20:01Þrír tímar til stefnuÞað eru þrír tímar til stefnu fyrir ensk félög áður en glugginn lokar.
England: 23:00
Þýskaland: 17:00
Ítalía: 19:00
Spánn: 23:00
Frakkland: 23:59
19:59Everton er á ansi vondum staðNei, hættu nú alveg. Það gengur ekkert hjá Everton að finna leikmenn og núna segir franska íþróttablaðið L'Equipe að félagið sé að vinna í því að fá Andre Ayew sem er án félags.
Everton er á ansi vondum stað í augnablikinu.

19:58Eins og ég héltHann er lentur.
19:55Von á tilkynningu frá Tottenham innan skammsGianluca Di Marzio segir að Tottenham muni tilkynna kaupin á bakverðinum Pedro Porro frá Sporting innan skamms.

19:48Ætli Sabitzer sé ekki lentur?Austurríkismaðurinn Marcel Sabitzer hlýtur að vera að lenda í Manchester. Eða þá að hann sé lentur nú þegar.
Hann er að ganga í raðir Manchester United.

19:44Klárt með CedricDavid Ornstein og Fabrizio Romano segja það báðir klárt að Cedric sé á leið til Fulham frá Arsenal.
19:42West Brom að fá lánsmann frá ChelseaWest Brom ætlar sér upp í ensku úrvalsdeildina. Félagið er að vinna í því að fá Omari Hutchinson, ungan leikmann Chelsea, á láni.
19:36Hazard er mættur til Eindhoven (Staðfest)
19:34Luca Pellegrini til Lazio (Staðfest)Fréttir frá Ítalíu! Lazio var að krækja í vinstri bakvörðinn Luca Pellegrini frá Juventus.

19:32Forest nær samkomulagi við PSGNottingham Forest hefur náð samkomulagi við PSG um markvörðinn Keylor Navas. Núna er bara spurning hvort það verði hægt að ganga frá öllum smáatriðunum áður en glugginn lokar.

19:27Búist við því að Cedric endi hjá FulhamThe Athletic greinir frá því að búist sé við því að Fulham fái bakvörðinn Cedric Soares á láni frá Arsenal. Fulham þarf þá að kaupa leikmann sem er nú þegar hjá félaginu. Það er gert ráð fyrir því að Fulham muni þá kaupa miðvörðinn Shane Duffy frá Brighton, en hann hefur verið á láni hjá félaginu.

19:25Barcelona að kaupa hægri bakvörð LA GalaxyFjárhagsstaða Barcelona er ekki góð en félagið er samt á markaðnum. Börsungar eru að kaupa Julian Araujo, 21 árs gamlan hægri bakvörð frá LA Galaxy í Bandaríkjunum.
19:24Útlit fyrir að Ziyech endi hjá PSGFabrizio Romano segir núna frá því að PSG og Chelsea séu nálægt því að ná saman um Hakim Ziyech. Líklegt að Ziyech endi hjá PSG.

19:15Ayoze Perez til Real Betis (Staðfest)Núna er allt að gerast! Leicester var að lána Ayoze Perez til Real Betis á Spáni.
19:13Sasa Lukic til Fulham (Staðfest)Fulham var að kaupa serbneska landsliðsmanninn Sasa Lukic. Hann kemur úr röðum Torino fyrir 10 milljónir evra.
19:12Wesley Hoedt til Watford (Staðfest)Watford var að krækja í hollenska varnarmanninn frá Anderlecht.
19:05Enn leitað að samkomulagiChelsea er að færast nær samkomulagi um kaup á Enzo Fernandez frá Benfica, en félögin eru í miklum viðræðum þessa stundina. Það er þó ekkert klárt enn og óvíst hvort það takist í tæka tíð áður en glugginn lokar.

19:04ÚtilokaðFabrizio Romano segir að það sé útilokað að Sofyan Amrabat fari til Barcelona. Börsungar geta aðeins fengið hann á láni út af fjárhagsstöðu sinni, en Fiorentina mun ekki samþykkja það. Ekki möguleiki!

18:53Spurs er líka að krækja í PorroTottenham á líka eftir að gefa út tilkynningu fyrir Pedro Porro sem er að koma frá Sporting. Styttist í það.

18:51Farið að róastÞetta er nú farið að róast svolítið, en við eigum eftir að fá tilkynningar frá Arsenal og Manchester United varðandi Jorginho og Sabitzer.
Svo á það eftir að koma í ljós hvort Enzo Fernandez endi hjá Chelsea eða ekki.
18:29Doherty er búinn að skrifa undir hjá AtleticoHægri bakvörðurinn Matt Doherty er búinn að skrifa undir hjá Atletico Madrid og verður það tilkynnt fljótlega. Hann kemur frá Tottenham á láni.

18:28Everton skoðaði að fá BatshuayiÞað gengur ekkert hjá Everton að finna leikmenn í dag, en það virðist enginn spenntur að fara þangað. Félagið skoðaði að fá belgíska sóknarmanninn Michy Batshuayi en hann er sáttur hjá Fenerbahce í Tyrklandi.

18:19Gengur hægt í ParísPSG er að reyna að fá varnarmanninn Milan Skriniar frá Inter og kantmanninn Hakim Ziyech frá Chelsea áður en glugginn lokar. Það gengur hægt.

18:17Er möguleiki á að Man Utd fái fleiri?Samkvæmt Daily Mail þá spurðist Manchester United fyrir um Daichi Kamada, miðjumann Eintracht Frankfurt, en hann verður samningslaus í lok tímabils.
Þá hafa einnig verið fréttir um áhuga United áhuga Houssem Aouar, miðjumanni Lyon í Frakklandi.
Er möguleiki á því að Man Utd kræki í fleiri en Sabitzer áður en glugginn lokar? Það er ólíklegt en ekki útilokað.

18:16Lokonga orðinn leikmaður Crystal PalaceBúist er við því að Palace eigi svo möguleika á því að kaupa hann frá Arsenal fyrir ákveðna upphæð að tímabilinu loknu en það á eftir að staðfesta það.
18:14Inter reyndi að fá PavardInter reyndi að fá franska varnarmanninn Benjamin Pavard frá Bayern München en það gekk ekki eftir.

18:10Sögur um Kante og LiverpoolÞað voru sögur um það áðan að Liverpool ætlaði að reyna við N'Golo Kante, miðjumann Chelsea. En það er ekki að fara að gerast.
Liverpool er ekki að fara að bæta meira við sig.

18:07Sabitzer er víst að fljúga yfir Frankfurt þessa stundina
18:03Gunni Birgis fagnar komu Jorginho
18:03Fresneda fer ekki fetBakvörðurinn Ivan Fresneda verður áfram í herbúðum Real Valladolid þrátt fyrir áhuga Arsenal og Dortmund. Líklegt þykir að hann verði á ferðinni næsta sumar. Efnilegur leikmaður þarna á ferðinni.

17:58Samkomulag í höfn!Telegraph segir frá því að samkomulag sé í höfn á mili Manchester United og Bayern München er varðar hinn 28 ára gamla Marcel Sabitzer.
Lán út leiktíðina.

17:53Bellingham fer ekki neitt í dagKóngurinn Liam Gallagher vill fá Jude Bellingham í Manchester City. Það gæti gerst næsta sumar, en gerist ekki í dag.
17:51Á leið heim til SpánarAyoze Perez, leikmaður Leicester, er á leið til Real Betis í spænsku úrvalsdeildinni. Hann hefur lengi spilað á Englandi, fyrst með Newcastle og svo með Leicester.

17:50Bara lán, og ekkert fleiraMan Utd er að fá Marcel Sabitzer á láni, en það er ekkert meira fólgið í því. Félagið hefur ekki samið við Bayern um að eiga möguleika á því að kaupa hann fyrir ákveðna upphæð næsta sumar.
17:49Man Utd var boðið að fá SaulNúna segir sagan að Man Utd hafi verið boðið að fá Saul frá Atletico Madrid en félagið hafi haft engan áhuga á því. Hann lék með Chelsea á láni á síðustu leiktíð og gat ekki neitt.

17:48Diego Llorente til Roma (Staðfest)
17:47Amrabat að missa sigSofyan Amrabat, sem var frábær með Marokkó á HM, er víst alveg að missa sig. Hann er svo æstur í að komast til Barcelona en vandamálið er það að Börsungar eiga engan pening til þess að krækja í hann.

17:45Styttist í að maður fari að panta Domino'sÞað er Domino's sem færir þér Gluggavaktina á Fótbolta.net.
Það styttist í kvöldmatinn og ansi líklegt að maður sæki sér Domino's fyrst maður er að taka kvöldvaktina og nóg um að vera á gluggadeginum.

17:39Hazard á leið til HollandsThorgan Hazard er á leið frá Borussia Dortmund til PSV Eindhoven í Hollandi.
Hann er yngri bróðir Eden Hazard, sem var einn allra besti fótboltamaður í heimi fyrir nokkrum árum.

17:33Meira af SouthamptonÞað er nóg að gera á skrifstofunni fyrir sunnan. Paul Onuachu, sóknarmaður Genk í Belgíu, er einnig á leiðinni. Mun hann kosta um 18 milljónir punda.
Southampton ætlar ekki að falla.

17:32Southampton er að landa þeim fljótastaDýrlingarnir í Southampton eru að kaupa Kamaldeen Sulemana frá Rennes í Frakklandi. Hann verður dýrasti leikmaður í sögu Southampton; mun kosta allt að 24,6 milljónir punda.
Sulemana, semer tvítugur að aldri, var fljótasti leikmaðurinn á HM í Katar. Hann er vinstri kantmaður sem var einnig orðaður við Everton.

17:21United skoðaði þrjá aðra kostiFréttamaðurinn Miguel Delaney segir að Man Utd hafi líka skoðað það að fá Ryan Gravenberch frá Bayern og Youri Tielemans frá Leicester. Þá var einnig skoðað að taka Isco sem er án félags.
Bayern vildi ekki sleppa Gravenberch og Leicester bað um mikinn pening fyrir Tielemans. Isco þótti ekkert sérlega spennandi.
United er því að taka Sabitzer.
Youri Tielemans 17:20Man Utd er að landa SabitzerDavid Ornstein, sem er einn sá áreiðanlegasti í bransanum, segir frá því að Manchester United sé að ganga frá lánssamningi við Bayern München. Hinn 28 ára gamli Marcel Sabitzer er á leið til Man Utd.
17:18Bournemouth krækir í úkraínskan landsliðsmannBournemouth, sem er að berjast fyrir lífi sínu í ensku úrvalsdeildinni, er að kaupa úkraínska landsliðsmanninn Illya Zabarnyi frá Dynamo Kiev fyrir 24 milljónir punda. Hann er miðvörður.
Það er svo gott sem staðfest.

17:16Djed Spence til Rennes (Staðfest)Tottenham hefur lánað bakvörðinn Djed Spence til Rennes í Frakklandi út þetta tímabil. Maður var spenntur fyrir því að sjá þennan leikmann í ensku úrvalsdeildinni en hann er ekki búinn að fá traustið hjá Antonio Conte.
17:14Forest vonast enn til að landa NavasNottingham Forest heldur enn í vonina um að Keylor Navas verði leikmaður félagsins í gluggalok. Forest er að reyna að fá hann frá Paris Saint-Germain.
Þetta er ekki í fyrsta sinn þar sem smá dramatík er í kringum Navas á gluggadegi.
Sjá einnig:Navas grét þegar hann fór ekki til Manchester United
17:12Sabitzer búinn að kveðja liðsfélaga sína
17:11Ljóst að Russo verður áfram hjá Man UtdÞað er búið að loka glugganum á milli félaga í úrvalsdeild kvenna á Englandi og því ljóst að enska landsliðskonan Alessia Russo mun ekki færa sig frá Arsenal til Manchester United að þessu sinni.
Sjá einnig:Man Utd hafnaði öðru heimsmetstilboði frá Arsenal
17:01Nathaniel Chalobah til West Brom (Staðfest)Chalobah var eitt sinn undrabarn er hann var hjá Chelsea. Hann var núna að ganga í raðir West Brom frá Fulham.

16:59Segir Jorginho vera mjög vanmetinnNizaar Kinsella, sem fjallar um Chelsea fyrir
Evening Standard í Bretlandi, segir að Jorginho sé mjög vanmetinn og að Arsenal sé gera góð kaup með því að fá hann.
"Arsenal er að gera góð kaup með því að fá hann á 12 milljónir punda. Chelsea gat misst hann á frjálsri sölu eða fengið 12 milljónir fyrir hann. Ég held að þeir hafi hallast að því að taka peninginn núna þar sem Graham Potter hefur ekki verið að velja hann mikið undanfarið."
16:58Bellerín lentur í LissabonVerður leikmaður Sporting eftir stutt stopp í Barcelona.
16:53Sabitzer mættur út á flugvöllAusturríkismaðurinn Marcel Sabitzer er mættur út á flugvöll í München og er að gera sig reiðubúinn í að fara yfir til Manchester. Það er líklegt að hann verði leikmaður Manchester United áður en þessi dagur er á enda.

16:51Sergi Canos til Olympiakos (Staðfest)Miðjumaðurinn Sergi Canos er mættur til Olympiakos á láni frá Brentford.

16:38Áhugavert myndband í dreifinguMarc Cucurella, varnarmaður Chelsea, var að svara spurningum um liðsfélaga sína fyrir vefmiðilinn Goal. Þar var hann spurður að því hver væri gáfaðasti leikmaðurinn hjá Chelsea. Hann þurfti að breyta svari sínu eftir að hann sagði 'Jorginho'.
16:35Caicedo verður áfram hjá Brighton.Þetta þýðir það að ekvadorski landsliðsmaðurinn Moises Caicedo verður áfram hjá Brighton. Arsenal lagði mikið kapp í það að kaupa leikmanninn en Brighton neitaði að selja.

16:34Jorginho er mættur í Arsenal treyjuna
16:25Maguire er ekki á förumFyrirliði Manchester United er ekki á leið til Inter. Hann verður áfram á Old Trafford.
16:25Ekkert samkomulag í höfnÞað ber að taka fram að enn er ekkert samkomulag í höfn er kemur að miðjumanninum Enzo Fernandez. Chelsea og Benfica eru enn að ræða saman.
Það er verið að flýta ferlinu með því að undirbúa læknisskoðun þar sem það styttist í að glugganum loki.
Ef Chelsea nær að landa Fernandez þá verður hann dýrasti leikmaður í sögu ensku úrvalsdeildarinnar.

16:22Öðru heimsmetstilboði hafnað í RussoArsenal gat ekki fengið Eyjakonuna Cloe Lacasse frá Benfica og er núna að reyna að kaupa ensku landsliðskonuna Alessiu Russo frá Manchester United.
United var að hafna öðru tilboði frá Arsenal í leikmanninn, en um er að ræða heimsmetsupphæð í kvennaboltanum - næstum því 500 þúsund pund.

16:21Haltu upp á GluggadaginnÞað er Domino's sem færir þér Gluggavaktina á Fótbolta.net. Gluggadagur á þriðjudegi = Þriðjudagstilboð!

16:16Rifjum það upp hvenær glugganum verður lokaðEngland: 23:00
Þýskaland: 17:00
Ítalía: 19:00
Spánn: 23:00
Frakkland: 23:59
16:14Komiði sæl og blessuðGluggadagurinn er enn í fullum gangi og ég verð með ykkur langt fram á kvöld. Endilega fylgist með.
Ég held að stærsta spurningin sé sú hvort Enzo Fernandez sé á leið til Chelsea en það standa yfir viðræður á milli Lundúnafélagsins og Benfica. Verður fróðlegt að sjá.
