Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fim 01. september 2022 14:43
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Soler búinn að semja við PSG - Kluivert til Valencia
Mynd: Getty Images
Carlos Soler er að ganga í raðir PSG, frá þessu greinir Le Parisien í Frakklandi.

Soler 25 ára miðjumaður sem hefur leikið með Valencia allan sinn feril og í fyrra lék hann sína fyrstu landsleiki. Í dag eru þeir orðnir níu talsins.

Talið er að PSG greiði um 18 milljónir evra fyrir Soler sem er á sínu síðasta samningsári hjá Valencia. Á ferlinum hefur hann leikið 226 leiki fyrir Valencia og skorað 36 mörk. Tólf þeirra skoraði hann á síðasta tímabili.

PSG hefur lánað Ander Herrera til Athletic Club á Spáni og þá bendir flest til þess að Idrissa Gana Gueye sé á leið frá félaginu til Everton.

Valencia er þá að fá Justin Kluivert frá Roma. Hann var á leið til Fulham en fékk ekki atvinnuleyfi á Englandi. Valencia hefur náð samkomulagi við Roma um að fá Hollendinginn í sínar raðir.
Athugasemdir
banner
banner
banner