01.09.26 - 07:27
Elvar Geir Magnússon
Abraham hafnaði Ipswich og verður áfram hjá Villa

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Sóknarmaðurinn Tammy Abraham verður áfram hjá Aston Villa eftir að hafa hafnað því að fara til Ipswich á láni.
Sóknarmaðurinn hefur ákveðið að berjast fyrir sæti sínu hjá Aston Villa og keppa við Nicolas Jackson, sem keyptur var fyrir 65 milljónir punda.

Abraham skoraði þrjú mörk í nítján leikjum á síðasta tímabili eftir að hafa komið til félagsins frá Besiktas fyrir 18,25 milljónir punda í janúar.
Villa var tilbúið að leyfa honum að fara en þessi 28 ára gamli leikmaður er ánægður á Villa Park.
„Við opnuðum dyrnar en hann hefur ákveðið að vera hér hjá okkur. Ég mun gera miklar kröfur til hans um að hann nýti hæfileika sína í þágu liðsins," segir Unai Emery, stjóri Aston Villa.