Fotbolti.net
01.09.26 - 17:08
Brynjar Ingi Erluson

Annar miðjumaður á förum frá Chelsea

Annar miðjumaður á förum frá Chelsea
Canon

Mynd: EPA

Chelsea er að lána portúgalska miðjumanninn Dario Essugo til franska félagsins Strasbourg.
Essugo er 21 árs en er ekki hluti af áætlunum Xabi Alonso hjá Chelsea á þessu tímabili.

Hann hefur verið orðaður við nokkur félög undanfarna daga en nú hefur verið ákveðið að hann gangi til liðs við Strasbourg sem er, líkt og Chelsea, í eigu BlueCo.

Essugo verður þriðji miðjumaðurinn sem yfirgefur Chelsea í þessum glugga. Enzo Fernandez er á leið til Manchester City fyrir 125 milljónir punda og þá var Andrey Santos seldur til Manchester United fyrr í sumar.

Hull hafði einnig áhuga á Essugo en ákvað að sækja Tim Iroegbunam frá Everton í staðinn.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.