01.09.26 - 10:57
Elvar Geir Magnússon
Arsenal sér ekki fram á að fá Alvarez

Alvarez verður væntanlega áfram hjá Atletico.

Mynd: EPA

Alvarez verður væntanlega áfram hjá Atletico.

Mynd: EPA
Daily Mail segir Arsenal hafa gefið upp von um að fá argentínska sóknarmanninn Julian Alvarez og búist er við að hann verði áfram hjá Atletico Madrid.
Sagt er að Arsenal sé farið að skoða aðra möguleika.
Sagt er að Arsenal sé farið að skoða aðra möguleika.
Alvarez vill helst fara til Barcelona og æfði ekki með Atletico nokkra daga í röð. Spænska félagið er hinsvegar ákveðið í að selja hann ekki til Börsunga.
Alvarez, sem er 26 ára gamall, hefur komið að 66 mörkum í 107 leikjum með Atletico síðan hann kom til félagsins frá Manchester City fyrir tveimur árum.
Samkvæmt fréttum þá æfði hann með Atletico í morgun.