01.09.26 - 20:01
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Balogun féll á læknisskoðun

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Folarin Balogun, sem Everton ætlaði sér að kaup, féll á læknisskoðun samkvæmt franska miðlinum RMCSport. Balogun er ekki í toppstandi að mati læknateymis Everton en Mónakó og teymi leikmannsins er á því að hann sé leikfær.
Everton og Mónakó voru búin að ná samkomulagi sín á milli en búist er við því að ekkert verði af skiptunum út af niðurstöðu læknisskoðunarinnar.
Balogun er 25 ára bandarískur landsliðsmaður sem var á mála hjá Arsenal á árunum 2008-2023. Hann hefur skorað 31 mark í 91 leik fyrir Mónakó á þremur tímabilum.

Everton var tilbúið að greiða 45 milljónir evra fyrir Balogun og hefði sú upphæð getað hækkað um 5 milljónir til viðbótar.