Fotbolti.net
01.09.26 - 19:35
Brynjar Ingi Erluson

Besta deildin: Ótrúlegar lokamínútur í Vesturbænum

Arnór Ingvi jafnaði á lokasekúndum leiksins

Arnór Ingvi jafnaði á lokasekúndum leiksins

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

KR 1 - 1 Víkingur R.
0-1 Ármann Ingi Finnbogason ('91 )
1-1 Arnór Ingvi Traustason ('96 )
Lestu um leikinn
KR-ingar náðu í hádramatískt 1-1 jafntefli gegn Íslandsmeisturum Víkings í toppslag Bestu deildar karla á Meistaravöllum í kvöld. Bæði mörk leiksins komu í uppbótartíma.

Það var mikill hiti á milli liðanna eins og búast mátti við eftir atvik næturinnar. Stuðningsmenn Víkings unnu þá skemmdarverk á Meistaravöllum þar sem stúkan og varamannaskýlin voru máluð rauð. KR-ingar þurftu því að standa í hreinsunarstarfi fyrir leik.

Leikurinn byrjaði með látum og Hrannar Snær Magnússon vildi fá vítaspyrnu strax á fjórðu mínútu. Hann komst fram hjá Gabríel Hrannari Eyjólfssyni og féll við en ekkert var dæmt. Umdeild ákvörðun en KR-ingar héldu áfram að sækja og fóru að banka fastar á dyrnar. Aron Snær Friðriksson var þó öruggur í marki Víkinga.

Heimamenn voru nálægt því að komast yfir eftir hálftíma þegar boltinn féll fyrir Arnór Ingva Traustason sem reyndi að koma honum í netið. Sveinn Gísli Þorkelsson kom hins vegar til bjargar á síðustu stundu og hreinsaði á marklínu.

Víkingar komu boltanum í netið á 37. mínútu. Valdimar Þór Ingimundarson skallaði fyrirgjöf aftur fyrir sig á Stíg Diljan Þórðarson sem skoraði en markið var dæmt af vegna rangstöðu. Dómurinn var afar tæpur miðað við endursýningar en virtist þó réttur.

Valdimar fékk síðan þrjú góð færi undir lok fyrri hálfleiks. Hann átti tvö skot sem fóru rétt fram hjá og skallaði einnig fram hjá markinu. Þetta var einfaldlega ekki hans dagur fyrir framan markið.

Síðari hálfleikurinn var ekki jafn fjörugur enda þreytan farin að segja til sín. Orri Hrafn Kjartansson var þó hársbreidd frá því að koma KR yfir þegar um tuttugu mínútur voru eftir. Hann fékk boltann fyrir utan vítateiginn og lét vaða en skotið small í þverslánni og fór yfir.

Víkingar urðu fyrir áfalli undir lokin þegar Sveinn Gísli lenti illa, greip um öxlina og þurfti að fara af velli. Allt stefndi í markalaust jafntefli en á fyrstu mínútu uppbótartímans steig Ármann Ingi Finnbogason fram.

Hann fékk boltann á hægri vængnum, skar inn á vinstri fótinn og klíndi honum upp í vinstra hornið. Risastórt mark sem virtist ætla að koma Víkingum í tíu stiga forystu í titilbaráttunni.

KR-ingar neituðu hins vegar að gefast upp og jöfnuðu á síðustu sekúndum uppbótartímans. Galdur Guðmundsson skallaði þá boltann inn á vítateiginn þar sem Arnór Ingvi stangaði hann í netið og bjargaði stigi í ótrúlegum lokamínútum í Vesturbænum.

Úrslitin eru engu að síður ágæt fyrir Víkinga sem halda átta stiga forskoti á Fram og KR. Ein umferð er eftir fyrir tvískiptingu deildarinnar en að henni lokinni verður leikin einföld umferð.
Ármann Ingi fagnar marki sínu

Ármann Ingi fagnar marki sínu

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.