01.09.26 - 16:41
Brynjar Ingi Erluson
Brighton í viðræðum um „hinn nýja Rodri“

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Brighton hefur opnað viðræður við Stuttgart um spænska miðjumanninn Chema Andres. Þetta herma heimildir Sky í Þýskalandi.
Andres er 21 árs og leikur aðallega sem varnarsinnaður miðjumaður. Hann er samningsbundinn Stuttgart til ársins 2030 og því liggur þýska félaginu ekkert á að selja hann.
Brighton hefur mikinn áhuga á Spánverjanum og er í viðræðum við Stuttgart. Óvíst er þó hvort enska félaginu takist að ganga frá kaupunum svo skömmu fyrir lok félagaskiptagluggans.
Andres er talinn einn efnilegasti varnarsinnaði miðjumaður Evrópu og verið líkt við Rodri, einn allra besta varnarsinnaða miðjumanns heims. Hann er uppalinn hjá Real Madrid og lék þrjá leiki með aðalliðinu áður en Stuttgart keypti hann.
Hann var hluti af U19 ára landsliði Spánar sem varð Evrópumeistari árið 2024.