Fotbolti.net
01.09.26 - 22:44
Brynjar Ingi Erluson

Camara fékk símtal frá Liverpool

Lamine Camara í leik með Mónakó

Lamine Camara í leik með Mónakó

Canon

Mynd: EPA

Liverpool hafði samband við Lamine Camara og fulltrúa hans í kvöld og lýsti yfir mögulegum áhuga á að fá miðjumanninn til félagsins á næsta ári.
Mónakó hætti við að selja Camara til Chelsea á elleftu stundu þrátt fyrir að samkomulag væri í höfn og leikmaðurinn hefði gengist undir læknisskoðun.

Liverpool bauðst einnig að kaupa Camara undir lok gluggans en ákvað að aðhafast ekki.

Ben Jacobs segir félagið þó hafa haft samband við bæði Mónakó og fulltrúa leikmannsins í kvöld og lýst yfir mögulegum áhuga á að sækja hann á næsta ári, svo lengi sem hann færi ekki til Chelsea.

Liverpool mun því að öllum líkindum blanda sér í baráttuna um miðjumanninn eftir tímabilið.

Camara er 22 ára og talinn einn besti miðjumaður frönsku deildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.