01.09.26 - 10:12
Elvar Geir Magnússon
Chelsea búið að gera tilboð í Camara

Lamine Camara, til hægri.

Mynd: EPA

Lamine Camara, til hægri.

Mynd: EPA
Chelsea hefur gert 38,5 milljóna punda tilboð í miðjumanninn Lamine Camara hjá Mónakó. Breska ríkisútvarpið greinir frá.
Camara er 22 ára landsliðsmaður Senegal sem gerði flotta hluti í frönsku deildinni á síðustu leiktíð. Hann á 49 landsleiki að baki þrátt fyrir ungan aldur.
Þetta tilboð er hluti af áætlunum félagsins um að leysa Enzo Fernandez af hólmi, sem er að nálgast félagaskipti til Manchester City fyrir um 120 milljónir punda.

TENGT EFNI
Kone til Chelsea?
Chelsea hefur einnig verið orðað við Manu Kone, franska landsliðsmiðjumanninn hjá Roma.
Íþróttafréttamaðurinn Nizaar Kinsella segir klárt að Kone sé á blaði hjá Chelsea en ítalska félagið segir að ekki hafi neitt formlegt tilboð borist. Gian Piero Gasperini, stjóri Roma, vill alls ekki missa leikmanninn og ólíklegt er talið að hann verði seldur.