01.09.26 - 11:31
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Chelsea hafnaði risatilboði City

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Breski miðillinn talkSPORT segir að rúmlega 120 milljóna punda tilboði Manchester City í Enzo Fernandez hafi verið hafnað. Viðræður séu þó enn í gangi um möguleg félagaskipti, en glugginn lokar í kvöld.
Argentínski miðjumaðurinn vill fara til City en Chelsea þarf að samþykkja það svo það geti gerst. Chelsea er að skoða markaðinn hvaða leikmann félagið getur fengið í staðinn en á þessum tímapunkti hefur Chelsea ekki keypt annan miðjumann.

Svo City nái að landa Fernandez þarf félagið að öllum líkindum að slá met í deildinni og greiða meira en það sem Liverpool greiddi fyrir Alexander Isak fyrir ári síðan.
Chelsea horfir til Lamine Camara hjá Mónakó, Manu Kone hjá Roma og þá eru Lucas Bergvall (Tottenham), Morgan Gibbs-White (Nottingham Forest) og Martin Zubimendi (Arsenal) einnig orðaðir við félagið.