01.09.26 - 20:29
Brynjar Ingi Erluson
Chelsea og Mónakó ná saman um Camara

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Chelsea og Mónakó hafa náð samkomulagi um senegalska miðjumanninn Lamine Camara. Þetta segir Fabrizo Romano með frasanum „Here we go!“.
Chelsea hafði lagt fram tvö tilboð í Camara sem Mónakó hafnaði enda vildi franska félagið ekki missa hann á lokadegi félagaskiptagluggans. Lundúnafélagið hefur leitað að miðjumanni í stað Enzo Fernandez sem er á leið til Manchester City.
Romano segir Chelsea nú loksins hafa náð samkomulagi við Mónakó um kaupverð upp á 50 milljónir punda. Camara hefur fengið leyfi til að ferðast til Lundúna og gangast undir læknisskoðun.
Chelsea keppist nú við tímann um að ljúka læknisskoðuninni og ganga frá allri pappírsvinnu áður en glugginn lokar.
Camara er 22 ára, fastamaður í landsliði Senegal og talinn einn mest spennandi miðjumaður frönsku deildarinnar.

???????? EXCLUSIVE: Chelsea agree deal in principle to sign Lamine Camara from AS Monaco, here we go! ????
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) September 1, 2026
Fee worth €55m and authorization to travel for medical.
Initial agreement done now running in order to complete medical and formal steps in time. pic.twitter.com/DuCBSuZBiN