Fotbolti.net
01.09.26 - 18:29
Brynjar Ingi Erluson

Chilwell aftur til Palace?

Ben Chilwell gæti verið á leið aftur til Palace

Ben Chilwell gæti verið á leið aftur til Palace

Canon

Mynd: EPA

Enski bakvörðurinn Ben Chilwell gæti verið að snúa aftur í ensku úrvalsdeildina.
Chilwell er 29 ára vinstri bakvörður sem hefur leikið með Strasbourg í Frakklandi síðastliðið ár. Hann vakti mikla athygli fyrir frammistöðu sína með Leicester áður en Chelsea keypti hann árið 2020.

Englendingurinn var hluti af Chelsea-liðinu sem vann Meistaradeildina árið 2021 og lék alls 107 leiki fyrir félagið þar sem hann skoraði níu mörk.

Chilwell fór á láni til Crystal Palace í byrjun síðasta árs áður en hann samdi við Strasbourg um sumarið. Nú gæti hann snúið aftur á Selhurst Park því Palace á í viðræðum við franska félagið um kaup á honum.

Viðræðurnar standa enn yfir en ágætar líkur eru taldar á að Chilwell snúi aftur í ensku úrvalsdeildina.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.