01.09.26 - 19:48
Brynjar Ingi Erluson
Enzo búinn í læknisskoðun

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Argentínski miðjumaðurinn Enzo Fernandez hefur lokið læknisskoðun hjá Manchester City og ætti þess að vera skammt að bíða að félagaskipti hans frá Chelsea verði staðfest.
Manchester City og Chelsea náðu samkomulagi um kaupverð á Enzo í kvöld en City greiðir um 125 milljónir punda fyrir Argentínumanninn.
Hann verður þar með dýrasti leikmaður í sögu ensku úrvalsdeildarinnar ásamt Alexander Isak sem Liverpool keypti frá Newcastle fyrir sömu upphæð á síðasta ári.
Enzo hefur lokið læknisskoðun hjá Manchester City og mun nú skrifa undir langtímasamning. Staðfesting ætti að berast innan skamms en rúmar tvær klukkustundir eru þar til félagaskiptaglugginn lokar.

???????????? Enzo Fernández has completed a medical as new Manchester City player.
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) September 1, 2026
£125m move entering into documents and formal steps next with Man City and Chelsea. pic.twitter.com/WoDoBxMHeZ