Fotbolti.net
01.09.26 - 17:15
Brynjar Ingi Erluson

Fljótasti maður þýsku deildarinnar á leið til Leeds

Fljótasti maður þýsku deildarinnar á leið til Leeds
Canon

Mynd: EPA

Franski U21 árs landsliðsmaðurinn Jean Matteo-Bahoya er á leið til Leeds United, en félagið hefur náð samkomulagi við Eintracht Frankfurt um kaup á leikmanninum.
Bahoya hafnaði á dögunum að ganga til liðs við Hull City þrátt fyrir að félagið hefði náð samkomulagi við Frankfurt. Líklegt er að hann hafi þá þegar vitað af áhuga annarra félaga.

Greint var frá viðræðum Leeds og Frankfurt fyrir skömmu og hafa þær gengið hratt fyrir sig. Leeds fær Bahoya á láni út tímabilið en í samningnum er 25 milljóna punda kaupskylda.

Stærsta áskorunin var að ná samkomulagi við leikmanninn sjálfan en Bahoya hefur nú gefið grænt ljós. Hann er því á leið til Englands í læknisskoðun áður en hann skrifar undir.

Bahoya, sem er 21 árs gamall, er athyglisverður leikmaður, hann er eldfljótur og er eini leikmaðurinn í sögu þýsku Bundesliga til að ná yfir 37km/klst hraða frá því að mælingar hófust. Einungis þrír hafa náð þeim hraða í sögu ensku úrvalsdeildarinnar.

Til samanburðar var meðalhraði Usain Bolt 37,58km/klst þegar hann setti heimsmetið í 100 metra hlaupi 2009.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.