01.09.26 - 20:41
Brynjar Ingi Erluson
Fofana fer til Sunderland - Leeds hafnaði tilboði í Okafor

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Belgíski vængmaðurinn Malick Fofana er á leið til Sunderland eftir að hafa valið félagið fram yfir Crystal Palace. Enskir fjölmiðlar greina frá þessu.
Lyon samþykkti tilboð Sunderland í Fofana í dag áður en Crystal Palace blandaði sér í baráttuna um vængmanninn stuttu eftir að Fofana hafði lokið læknisskoðun hjá Sunderland.
Palace vildi senda Fofana í ítarlega læknisskoðun vegna áhyggna af ökklameiðslum hans. Sunderland hækkaði hins vegar launatilboð sitt til leikmannsins og bauð umboðsmanni hans hærri greiðslu. Fofana hefur nú samþykkt að ganga í raðir Sunderland.
Fyrr í kvöld hafnaði Leeds tilboði Sunderland í svissneska vængmanninn Noah Okafor. Sunderland leit á hann sem varakost ef Fofana hefði valið Crystal Palace en Leeds hafnaði tilboðinu umsvifalaust.
Það kom þó ekki að sök því Fofana valdi Sunderland sem hefur þar með leyst vængstöðuna.
Englandsmeistarar Arsenal höfðu einnig áhuga á Fofana, en félagið var ekki reiðubúið að greiða 30 milljóna punda verðmiðann og dró sig því úr baráttunni.

?????????? Malick Fofana’s agents have just informed all parties involved in transfer-saga that the player wants to join Sunderland.
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) September 1, 2026
Fofana, now set to join #SAFC as originally planned this morning. pic.twitter.com/6UaIRtFWVJ