Fotbolti.net
01.09.26 - 15:47
Brynjar Ingi Erluson

Fulham að sækja miðvörð úr La Liga

Fulham að sækja miðvörð úr La Liga
Canon

Mynd: EPA

Fulham ætlar að vera duglegt fyrir gluggalok og er enn einn leikmaðurinn á leið til félagsins en sá heitir David Affengruber og spilar með Elche í La Liga á Spáni.
Affengruber er 25 ára austurrískur miðvörður sem hefur leikið með Elche frá árinu 2024. Áður lék hann með Liefering, Salzburg og Sturm Graz í heimalandinu og á einn A-landsleik fyrir Austurríki.

Sky Sports greinir frá því að Fulham hafi náð samkomulagi við Elche um kaup á varnarmanninum fyrir 8,5 milljónir punda. Hann er nú á leið til Lundúna þar sem hann mun gangast undir læknisskoðun.

Hugo Larsson og Manuel Angel eru einnig á leið í raðir Fulham og verða þeir kynntir til leiks á næstu klukkutímum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.