Fotbolti.net
01.09.26 - 16:24
Brynjar Ingi Erluson

Gæti endað hjá Leeds eftir að hafa hafnað Hull

Gæti endað hjá Leeds eftir að hafa hafnað Hull
Canon

Mynd: EPA

Leeds United er komið í viðræður við þýska félagið Eintracht Frankfurt um franska U21 árs landsliðsmanninn Jean-Matteo Bahoya.
Hefur ekki áhuga á að fara til Hull
TENGT EFNI

Hefur ekki áhuga á að fara til Hull

Tottenham hafði betur gegn Leeds í baráttunni um úkraínska vængmanninn Mykhailo Mudryk og neyddust nýliðarnir því til að leita aftur á markaðinn.

Leeds vill styrkja sig á vinstri vængnum og hefur hafið viðræður við Frankfurt um Bahoya.

Bahoya, sem er 21 árs, hafnaði á dögunum að ganga til liðs við Hull City eftir að Frankfurt hafði samþykkt tilboð enska nýliðans. Það verður því fróðlegt að sjá hvernig hann tekur í áhuga Leeds.

Ef Bahoya gengur til liðs við Leeds mun félagið gefa ítalska vængmanninum Wilfried Gnonto leyfi til að fara til Fiorentina á láni með möguleika á varanlegum félagaskiptum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.