Fotbolti.net
01.09.26 - 15:59
Brynjar Ingi Erluson

Halda enn í vonina um að landa Fofana

Halda enn í vonina um að landa Fofana
Canon

Mynd: EPA

Sunderland heldur enn í vonina um að landa belgíska vængmanninum Malick Fofana frá Lyon.
Palace reynir að stela Fofana af Sunderland
TENGT EFNI

Palace reynir að stela Fofana af Sunderland

Nokkur félög hafa barist um Fofana síðustu daga. Englandsmeistarar Arsenal drógu sig úr baráttunni þar sem þeir töldu verðmiðann of háan.

Sunderland náði samkomulagi við Lyon en skömmu síðar bárust fregnir af því að Crystal Palace ætlaði að reyna að stela leikmanninum eftir að hafa einnig samið við franska félagið.

Samkvæmt Sky Sports hefur Sunderland jafnframt bókað einkaflug fyrir samlanda Fofana, Dodi Lukebakio, takist félaginu að ná samkomulagi við Benfica um vængmanninn.

Það eru því spennandi klukkustundir fram undan og mikil óvissa um hvar Fofana endar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.