01.09.26 - 10:00
Fótbolti.net
Kaffispjallið: Blæti fyrir takkaskóm og nýtt tækifæri í KR
Auglýsing

Arnar Freyr hefur verið frá vegna meiðsla síðan í upphafi Íslandsmótsins.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Markvörðurinn hefur hafið æfingar að nýju.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnar Freyr hefur verið frá vegna meiðsla síðan í upphafi Íslandsmótsins.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnar Freyr Ólafsson, markvörður KR, er nýjasti viðmælandi Kaffispjallsins. Líkt og vanalega var farið yfir víðan völl en Nördahornið og Hraðaspurningarnar eru að sjálfsögðu á sínum stað.
Arnar Freyr gekk nokkuð óvænt til liðs við KR síðasta sumar. Hann kom frá HK þar sem hann hafði verið undanfarin ár. Markvörðurinn, sem elskar lyftingar, hafði misst sæti sitt hjá HK eftir að hafa slitið hásin árið áður. Farið er yfir þau meiðsli sem og þau sem hann varð fyrir fyrr á þessu tímabili í þættinum.
Þá er farið yfir gríðarlegan áhuga hans á skóm, bæði takka- og götuskóm ásamt skoðun hans á markmannshönskum, uppeldið í Grafarvogi, skiptin til Leiknis Reykjavíkur og áhrifin sem Sandor Matus hafði á Arnar Frey.
Þátturinn er eins og aðrir þættir Kaffispjallsins unninn í samstarfi við Livey.