Lið vikunnar í enska - Ungur Mourinho

Markvörður: Konstantinos Tzolakis (Hull City) - Önnur frábær frammistaða og annað hreint lak. Nýliðar Hull hafa heldur betur komið á óvart í upphafi tímabils og lykillinn að því er öflug vörn og gott skipulag og markvörðurinn er hjartað í því.

Mynd: EPA

Varnarmaður: Semi Ajayi (Hull City) - Hrikalega öflugur fyrir Hull. Hefur verið í Championship undanfarin ár en fer frábærlega af stað í deild þeirra bestu. Hull vann 1-0 útisigur gegn Coventry.

Mynd: EPA

Varnarmaður: Nordi Mukiele (Sunderland) - Þessi kraftmikli varnarmaður var líka frábær á síðasta tímabili. Sunderland vann Fulham 1-0.

Mynd: Sunderland

Varnarmaður: James Tarkowski (Everton) - Fyrirliðaframmistaða og skoraði í 1-1 jafntefli gegn Bournemouth.

Mynd: EPA

Miðjumaður: James McAtee (Nottingham Forest) - Algjörlega frábær og stýrði spilamennsku Forest í 2-2 jafntefli gegn Liverpool á Anfield.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Bruno Fernandes (Manchester United) - Þrenna og stoðsending í 5-2 sigri gegn Ipswich. Skoraði líka næstum því frá miðju!

Mynd: EPA

Miðjumaður: Rayan Cherki (Manchester City) - Þessi gríðarlega hæfileikaríki leikmaður skoraði tvö í sigri City gegn Crystal Palace.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Anthony Elanga (Newcastle) - Skoraði og var baneitraður í öflugum sigri á Spurs.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Yoane Wissa (Newcastle) - Skoraði líka og var frábær.

Mynd: EPA

Sóknarmaður: Joao Pedro (Chelsea) - Mark, stoðsending og frábær frammistaða í 4-3 sigri gegn Brighton. Hann var ekki valinn í HM hóp Brasilíu í sumar en Ancelotti var í stúkunni um helgina.

Mynd: EPA

Sóknarmaður: Erling Haaland (Manchester City) - Skorar nánast að vild og gerði tvö í 4-1 sigri gegn Palace.

Mynd: EPA

Stjórinn: Matthias Jaissle (Newcastle) - Þvílík byrjun á tímabilinu. Minnir á ungan Mourinho.

Mynd: EPA


Mynd: BBC
