Fotbolti.net
01.09.26 - 17:32
Brynjar Ingi Erluson

Liðsfélagi Elíasar fer til Palace - Stærsta sala í sögu dönsku deildarinnar

Osorio í leik með Midtjylland

Osorio í leik með Midtjylland

Canon

Mynd: EPA

Sílemaðurinn Dario Osorio er að ganga til liðs við Crystal Palace á Englandi frá Midtjylland í Danmörku, en um er að ræða stærstu sölu í sögu dönsku úrvalsdeildarinnar.
Osorio er 23 ára hægri vængmaður sem hefur farið á kostum með Midtjylland undanfarin þrjú ár.

Blaðamaðurinn Ben Jacobs segir að Midtjylland hafi samþykkt lánstilboð Crystal Palace í leikmanninn. Enska félagið greiðir tvær milljónir evra fyrir lánið en í samningnum er jafnframt kaupskylda upp á um 30 milljónir evra.

Þegar kaupskyldan verður virk á næsta ári verður Osorio dýrasti leikmaður sem seldur hefur verið úr dönsku deildinni.

Osorio varð danskur meistari með Midtjylland árið 2024 og vann síðan danska bikarinn á síðustu leiktíð. Þar lék hann með íslenska landsliðsmarkverðinum Elíasi Rafni Ólafssyni.

Sílemaðurinn á 25 A-landsleiki og þrjú mörk fyrir þjóð sína.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.