Fotbolti.net
01.09.26 - 19:58
Brynjar Ingi Erluson

Man Utd reynir að sækja bakvörð til nágrannanna

Man Utd reynir að sækja bakvörð til nágrannanna
Canon

Mynd: EPA

Manchester United hefur gert heiðarlega tilraun til að fá alsírska vinstri bakvörðinn Rayan Ait Nouri frá grönnum sínum í Manchester City undir lok félagaskiptagluggans. Litlar líkur eru þó taldar á að af skiptunum verði.
United vill styrkja bakvarðarstöðuna enda ekki úr mörgum kostum að velja í þeirri stöðu.

Alejandro Balde og Lewis Hall hafa verið orðaðir við félagið en ekkert varð úr þeim málum. Balde verður að öllum líkindum áfram hjá Barcelona og Hall er að ganga frá nýjum samningi við Newcastle.

Ben Jacobs greinir frá því í kvöld að United hafi spurst fyrir um Ait Nouri hjá Manchester City.

Óvíst er hvort viðræðurnar þróist frekar en City telur litlar líkur á að hægt verði að ganga frá félagaskiptunum áður en glugginn lokar.

Ait Nouri, sem kom til Man City á síðasta ári, hefur verið á bekknum í öllum leikjum Man City á tímabilinu, en ekki komið við sögu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.