01.09.26 - 16:51
Brynjar Ingi Erluson
Manu Kone ekki til sölu

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Ítalska félagið Roma er harðákveðið í því að halda franska landsliðsmanninum Manu Kone áfram hjá félaginu. Athletic segir frá.
Chelsea leitar að arftaka Enzo Fernandez sem gengur að öllum líkindum í raðir Manchester City á næstu klukkustundum.
Gian Piero Gasperini, þjálfari Roma, tók hins vegar skýrt fram eftir 4-0 sigur gegn Lecce í gær að Kone væri ekki til sölu og yrði áfram hjá félaginu.
Gasperini hefur mikil áhrif hjá Roma eftir að hafa komið liðinu í Meistaradeildina í fyrsta sinn í mörg ár. Liðið hefur einnig byrjað nýja tímabilið af krafti og unnið báða deildarleiki sína.
Roma hefur eytt meira en 100 milljónum evra í sumar og gæti þurft að selja einn eða tvo leikmenn. Félagið vill þó ekki ganga gegn vilja Gasperini, sérstaklega þar sem honum hefur ekki enn tekist að fá þann vinstri vængmann sem hann vill.
Þetta setur Chelsea í erfiða stöðu. Kone og Lamine Camara hjá Mónakó voru helstu kostir félagsins í stað Enzo en Mónakó hafnaði öðru tilboði Chelsea í Camara fyrir skömmu.