01.09.26 - 22:19
Brynjar Ingi Erluson
Mónakó hætti við að selja Camara til Chelsea á elleftu stundu

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Mónakó hætti á síðustu stundu við að selja senegalska miðjumanninn Lamine Camara til Chelsea. Stjórnendur Chelsea eru sagðir æfir yfir vinnubrögðum franska félagsins.
Chelsea taldi sig hafa gengið frá samkomulagi um kaup á arftaka Enzo Fernandez sem er á leið til Manchester City.
Mónakó samþykkti 50 milljóna punda tilboð Chelsea í Lamine Camara og fór miðjumaðurinn í læknisskoðun hjá Lundúnafélaginu. Á elleftu stundu hætti Mónakó hins vegar við söluna og verður Camara því áfram í frönsku deildinni.
Þetta kemur sér afar illa fyrir Chelsea sem tókst ekki að finna miðjumann í stað Enzo áður en félagaskiptaglugganum lokaði. Enskir fjölmiðlar segja stjórnendur félagsins æfa yfir því sem þeir telja ófagmannleg vinnubrögð Mónakó.
Ben Jacobs segir á X að Chelsea hafi getað stöðvað félagaskipti Enzo til Manchester City eftir að kaupin á Camara féllu um sjálf sig. Félagið ákvað þó að standa við loforð sín við Enzo og City og gaf grænt ljós á skiptin.